Fotbolti.net
03.09.22 - 23:12
Ívan Guðjón Baldursson

Rafinha er nýr liðsfélagi Arons Einars hjá Al Arabi (Staðfest)

Rafinha er nýr liðsfélagi Arons Einars hjá Al Arabi (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson, leikmaður Al Arabi í Katar, er kominn með nýjan liðsfélaga sem kemur beint úr herbúðum franska stórveldisins PSG.

Hann heitir Rafinha og hefur meðal annars spilað fyrir Barcelona og Inter á ferlinum, auk þess að eiga tvo landsleiki að baki fyrir Brasilíu og rúmlega 20 fyrir yngri landsliðin.

Rafinha er 29 ára gamall og spilaði 39 leiki á einu og hálfu ári hjá PSG. Ljóst er að hann mun koma til með að styrkja lið Al Arabi gífurlega.

Aron Einar er fastamaður í hjarta varnarinnar hjá Al Arabi sem hefur farið vel af stað á nýju tímabili og er á toppi deildarinnar, með tólf stig eftir fimm umferðir. Al Arabi tapaði síðasta leik sínum 0-3 á heimavelli og er Rafinha fenginn til að hjálpa í væntanlegri toppbaráttu.

Rafinha skrifar undir tveggja ára samning við Al Arabi sem hefur verið í viðræðum við PSG og umboðsteymi leikmannsins í rúman mánuð.

Rafinha spilaði 17 leiki á láni hjá Real Sociedad á seinni hluta síðustu leiktíðar er liðið endaði í sjötta sæti spænsku deildarinnar.

Miðjumaðurinn kemur á frjálsri sölu. Hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við PSG og tókst að semja við félagið um starfslok.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.