Fotbolti.net
05.09.22 - 12:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Reece James skrifar undir sex ára samning (Staðfest)

Reece James skrifar undir sex ára samning (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reece James, varnarmaður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og er hann nú samningsbundinn fram á sumarið 2028.

James er 22 ára og spilar oftast sem bakvörður eða vængbakvörður en getur einnig leyst stöðu miðvarðar.
Hann er uppalinn hjá Chelsea og hefur komið við sögu í 128 leikjum fyrir félagið. „Ég er hæstánægður með nýja samninginn og ég er þakklátur stuðningsmönnum, nýju eigendunum og öllum sem koma að félaginu," sagði James í viðtali sem birt var á heimasíðu félagsins.

James verður 23 ára í desember. Hann lék á láni hjá Wigan tímabilið 2018-19 og lék svo sína fyrstu leiki með Chelsea árið 2019-2020. Hann á þá að baki þrettán leiki fyrir enska landsliðið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.