Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. september 2022 17:30
Elvar Geir Magnússon
Redmond til Besiktas (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enski framherjinn Nathan Redmond hefur yfirgefið Southampton og gengið í raðir Besiktas í Tyrklandi.

Þessi 28 ára leikmaður hefur verið hjá Dýrlingunum síðan hann kom frá Norwich 2016.

Hann lék 232 leiki fyrir Southampton og skoraði 30 mörk.

„Þetta er jákvæð breyting fyrir hann, eftir sex ár var þetta kannski rétti tíminn til að takast á við eitthvað nýtt. Við áttum góðar stundir saman," segir Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton.
Athugasemdir
banner
banner
banner