Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 06. september 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Snodgrass til Hearts (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Skoski leikmaðurinn Robert Snodgrass er genginn í raðir Hearts í heimalandinu. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum sínum.

Á síðasta tímabili endaði Hearts í þriðja sæti skosku deildarinnar og er í fjórða sæti deildarinnar eftir sex umferðir á þessu tímabili.

Snodgrass verður 35 ára á morgun og hefur frá árinu 2008 spilað á Englandi. Síðast var hann á mála hjá WBA en samningur hans við félagið rann út í sumar.

Snodgrass er uppalinn hjá Livingston en hefur einnig spilað með Stirling (í Skotlandi), Leeds, Norwich, Hull, West Ham, Aston Villa og WBA.

Á árunum 2011-2019 lék hann 28 leiki fyrir skoska landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner