Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. febrúar 2020 13:36
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: HK vann Gróttu í vítaspyrnukeppni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 0 - 0 Grótta 4-2 eftir vítaspyrnukeppni

HK og Grótta áttust við í úrslitaleik um 5. sæti Fótbolta.net mótsins í dag.

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu þar sem ekkert var gefið eftir.

Hvorugu liði tókst að skora í venjulegum leiktíma og því var gripið til vítaspyrnukeppni.

HK byrjaði að spyrna og skoraði úr fyrstu fjórum tilraunum sínum. Seltirningar skoruðu úr fyrstu tveimur en brenndu af næstu tveimur og töpuðu því 4-2.

Lokastaðan:
1. ÍA
2. Breiðablik
3. Stjarnan
4. ÍBV
5. HK
6. Grótta
7. Grindavík
8. FH

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner