Fotbolti.net
Lið ársins og önnur verðlaun í Lengjudeild kvenna
Kvennaboltinn

27.09.26

Lið ársins og önnur verðlaun í Lengjudeild kvenna

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Tímabilinu í Lengjudeild kvenna lauk á dögunum. Grótta vann deildina frekar þægilega, en þær enduðu að lokum með sex stigum meira en nágrannarnir KR sem voru í öðru sæti deildarinnar. Landsbyggðarliðin Völsungur og Tindastóll féllu niður um deild, en upp í þeirra stað koma Fjölnir og Fylkir.

Fótbolti.net fékk þjálfara deildarinnar til að velja úrvalslið keppnistímabilsins. Hér að neðan má líta liðið augum en einnig er opinberað val á þjálfara og leikmanni ársins ásamt efnilegasta leikmanninum.
Tíu ára vegferð að Bestu deildinni - „Mun alltaf sitja eftir hjá mér"
TENGT EFNI

Tíu ára vegferð að Bestu deildinni - „Mun alltaf sitja eftir hjá mér"



Lið ársins:
Sophie Guilmette (Selfoss)

Maya Neal (Grótta)
Kristín Sara Arnarsdottir (Grótta)
Anna Björk Kristjánsdóttir (KR)
María Lovísa Jónasdóttir (Grótta)

Kara Guðmundsdóttir (KR)
Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
Alexa Maletis (ÍA)

Cally Queen Togiai (HK)
Nicole Douglas (Grótta)
Katla Guðmundsdóttir (KR)



Bekkur:
Kayla Burns (KR)
Védís Ösp Einarsdóttir (Selfoss)
Brooklyn Mae Nelson (FHL)
Sara Björk Gunnarsdóttir (Haukar)
Makayla Soll (KR)
Ísabella Anna Kjartansdóttir (Völsungur)
Rakel Grétarsdóttir (KR)

Aðrar sem fengu atkvæði í úrvalsliðið:
Markverðir: Embla Fönn Jónsdóttir (FHL), Kaylie Erin Bierman (HK), Laurence Gladu (Völsungur), Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (Haukar).
Varnarmenn: Aníta Lind Daníelsdóttir (Keflavík), Brynja Líf Jónsdóttir (Selfoss), Embla Katrín Oddsteinsdóttir (Selfoss), Eva Lind Elíasdóttir (Selfoss), Henríetta Ágústsdóttir (HK), Inga Laufey Ágústsdóttir (KR), Katrín Ásta Eyþórsdóttir (KR), Margrét Viktoría Harðardóttir (Keflavík), Payton Marie Felton (FHL), Salóme Kristín Róbertsdóttir (Keflavík).
Miðjumenn: Ragnhildur Sóley Jónasdóttir (HK), Telma Sif Búadóttir (Grótta), Valgerður Ósk Valsdottir (Haukar).
Sóknarmenn: Alexis Wright (FHL), Alma Mathiesen (HK), Halla Þórdís Svansdóttir (Haukar).





Þjálfari ársins: Dom Ankers (Grótta)
Dom er 31 árs Englendingur sem hefur verið hjá Gróttu síðan hann kom til félagsins árið 2021. Hann hefur verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkum og einnig þjálfað 2. og 5. flokk karla hjá félaginu. Hann var ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna eftir að Matthías Guðmundsson tók við Val undir lok árs 2024. Grótta var nálægt því að fara upp í fyrra og tókst ætlunarverkið svo í ár. Dom er svo sannarlega vel að þessum verðlaunum kominn.
Aðrir sem fengu atkvæði sem þjálfari ársins: John Andrews (KR), Jonathan Glenn (Selfoss), Juan Carlos Dominguez (Tindastóll).

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Leikmaður ársins: Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
Lovísa er öflugur leikmaður sem er uppalin í Gróttu og hefur leikið þar allan sinn feril í meistaraflokki. Lovísa, sem er fædd árið 2003, átti stórkostlegt sumar og fékk hún fullt hús atkvæða í liði ársins ásamt því að vinna kosninguna um leikmann ársins. Hún spilaði alla 18 leiki Gróttu í Lengjudeildinni í sumar, stjórnaði ferðinni á miðsvæðinu og skoraði jafnframt fimm mörk. „Meistaraflokkur kvenna í Gróttu var stofnaður fyrir 10 árum. Við erum búnar að vera svo nálægt þessu síðustu ár. Þetta er óraunverulegt. Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir okkur. Við erum með geggjað lið og erum ótrúlega vel að þessu komnar en það er kannski ekki hlutlaust mat," sagði Lovísa við RÚV þegar sætið í Bestu deildinni var tryggt.
Aðrar sem fengu atkvæði sem leikmaður ársins: Cally Queen Togiai (HK), Kara Guðmundsdóttir (KR), Kristín Sara Arnarsdóttir (Grótta), Nicole Douglas (Grótta).

Mynd: Grótta


Efnilegust: Kara Guðmundsdóttir (KR)
Grótta hefur átt efnilegasta leikmann ársins síðustu tvö árin en núna er það Kara Guðmundsdóttir úr KR sem fær þessi verðlaun. Kara, sem er fædd árið 2010, átti stórkostlegt sumar í Vesturbænum þar sem hún skoraði tólf mörk í 18 leikjum í Bestu deildinni. Þar á meðal skoraði hún tvö mörk í 3-5 sigrinum gegn Haukum sem var algjör lykilleikur í því að KR komst upp um deild í sumar. Kara er af miklu fótboltakyni en foreldrar hennar eru Guðmundur Benediktsson og Kristbjörg Ingadóttir, sem spiluðu bæði með landsliðinu. Systir Köru, Katla, fékk líka atkvæði sem efnilegasti leikmaður ársins og er með henni í liði ársins. Katla er fædd árið 2007 en það verður skemmtilegt að fylgjast með þeim systrum næsta sumar.

Aðrar sem fengu atkvæði sem efnilegasti leikmaður ársins: Ísabella Anna Kjartansdóttir (Völsungur), Katla Guðmundsdóttir (KR), Kristín Sara Arnarsdóttir (Grótta) (KR).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.