Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 01. febrúar 2020 06:00
Fótbolti.net
Ótímabæra spáin á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsta ótímabæra spá útvarpsþáttarins Fótbolti.net fyrir Pepsi Max-deildina 2020 verður opinberuð í dag.

Þátturinn verður milli 12 og 14 eins og venjan er á laugardögum en Elvar Geir og Tómas Þór fjalla um allt sem máli skiptir í boltanum.

Liðin verða skoðuð og rætt um leikmenn sem spennandi verður að fylgjast með á komandi tímabili.

Einnig verður rætt aðeins um janúargluggann og þá verður Mitch Freeley, fréttamaður beIN SPORTS í Katar, á línunni og ræðir um gengi Heimis Hallgríms og Arons Einars með Al-Arabi.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner