15.09.26 - 19:47
Sigurjón Árni Torfason
Viðar Örn: Ég hefði orðið reiður þá út í þjálfarann
Auglýsing

VÖK vélinn.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

VÖK vélinn.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Selfoss tók á móti Álftanesi á JÁVERK-vellinum á Selfossi í Fótbolta.net-bikarnum. Selfoss vann leikinn 5–0 og tryggði sér sæti á Laugardalsvelli í úrslitaleik gegn Haukum. Fótbolti.net var mætt á völlinn og ræddi við Viðar eftir leik.
Lestu um leikinn: Selfoss 5 - 0 Álftanes
„Glaður að komast í úrslit og þú veist, við undirbjuggum okkur vel fyrir þennan leik. Pössuðum okkur á að vera ekki með neitt vanmat og svoleiðis og þeir voru hörku öflugir hérna í byrjun leiks, gátu alveg sært okkur en eftir að við skoruðum og svo þetta rauða spjald þá svona varð þetta auðveldara fyrir okkur en það þarf að klára þannig og eins og ég segi, þeir gáfu okkur alveg góðan hálfleik."
Viðar skoraði fallegt mark beint úr aukaspyrnu og var tekinn strax af velli í kjölfarið.
„Nei, ég hefði orðið reiður þá út í þjálfarann í smástund þannig að ég setti boltann niður og ég var ekki að fara neitt sko. Þannig að ég vildi klára þetta þannig að það var rosa gott að ná þessu inn."
Selfoss mæta Haukum næst í úrslitaleik Fótbolta.net bikarsins á Laugardalsvelli.
„Bara mjög, sko. Þeir strákarnir sögðu að þetta hafi verið fáránlega skemmtilegt seinast þegar þeir fóru, þannig að mér finnst það bara frábært að geta endað tímabilið þannig og vonandi náð að klára þetta með titli og fengið fullt af fólki á völlinn, það yrði rosa gaman.”
Viðar varð bikarmeistari með KA árið 2024.
„Það var ógeðslega skemmtilegt, fyrir 2. deildar lið að komast þangað, er bara frábært og við bara vonumst til að sjá sem flesta og vinna þennan leik."