Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. febrúar 2020 14:48
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu ótrúleg mistök hjá markverði Brentford
David Raya gerði klaufaleg mistök í stórsigri.
David Raya gerði klaufaleg mistök í stórsigri.
Mynd: Getty Images
Brentford rúllaði yfir Hull City í fyrsta leik dagsins í Championship deildinni.

Brentford komst tveimur mörkum yfir fyrir leikhlé en heimamenn í Hull náðu að jafna með heldur skrautlegu marki.

Markvörður Brentford, David Raya, gerðist þá sekur um skelfileg mistök og fékk sjálfsmark skráð á sig. Myndband af atvikinu er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Raya fékk auðveldan bolta til sín langt utan af velli en tókst ekki að eiga við hann. Hann reyndi að taka á móti knettinum með hægri fæti en sú tilraun misheppnaðist hrapalega.

Patrik Gunnarsson er meðal varamarkvarða hjá Brentford.

Athugasemdir
banner
banner