Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 01. febrúar 2020 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Traore fór úr axlarlið en hélt samt áfram
Adama Traore, kantmaður Úlfanna, fór úr axlarlið eftir baráttu við Harry Maguire, varnarmann Manchester United, í fyrri hálfleik liðanna á Old Trafford í kvöld.

Traore, sem er mikið vöðvatröll, hélt þrátt fyrir það leik áfram. Hann spilaði alveg þangað til hann var tekinn af velli á 76. mínútu.

„Hann var mjög kvalinn," sagði Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, eftir leikinn. „Þetta hefur gerst áður - gegn Tottenham - hann er sterkur strákur."

Traore hefur farið mikinn með Wolves á þessu tímabili, en United náði að halda honum í skefjum mest af í dag.


Athugasemdir
banner