Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2020 14:17
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Dybala og Ronaldo kvörtuðu undan liðsfélögunum
Mynd: Getty Images
Juventus tapaði fyrir Lyon í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn.

Cristiano Ronaldo og Paulo Dybala byrjuðu í sóknarlínu Juve og voru ósáttir með lítinn stuðning frá miðjunni.

Þeir félagarnir náðust á myndband þegar þeir spjölluðu saman á spænsku um hversu litla aðstoð þeir væru að fá frá miðjumönnum.

„Miðjumennirnir eru ekki að hjálpa okkur nógu mikið, við erum aleinir," sagði Ronaldo við Dybala.

„Það tekur enginn boltann," svaraði Dybala,

„Já og þeir vinna aldrei seinni boltann," sagði Ronaldo svo að lokum.


Athugasemdir
banner
banner
banner