Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 01. apríl 2021 23:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hógvær Cecilía: Ekki það að mér finnist leiðinlegt að vera hrósað
Við erum allar í þessu saman
Við erum allar í þessu saman
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var til viðtals í vikunni um ferilinn til þessa. Af svörum hennar í viðtölum að dæma þá er hún mjög hógvær. Hún hrósar liðsfélögunum í staðinn fyrir að standa ein með hrósið sem hún fær þegar það á við.

Fréttaritari tók eftir þessu þegar hann skoðaði feril markvarðarins til þessa og spurði Cecilíu út í hógværðina. Dæmi um hógværð Cecilíu má sjá og heyra hér.

Viðtalið:
Fékk fyrstu tækifærin 13 ára - „Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið"

Finnst þér óþægilegt þegar þér er hrósað? Eða ertu á því að liðsheildin eigi alltaf að fá hrósið frekar en einstaklingurinn?

Já, ég hef held ég alltaf verið þannig," sagði Cecilía.

„Það er ekki það að mér finnist leiðinlegt að vera hrósað heldur kannski frekar sú staðreynd að ég veit það að leikir vinnast ekki á einum leikmanni heldur að allt liðið þarf að vinna saman. Hvort sem þú ert inn á vellinum eða fyrir utan hann að peppa, við erum allar í þessu saman," bætti Cecilía við.

Aukaefni:
„Án hans væri ég ekki á þeim stað sem ég er í dag"
Athugasemdir
banner
banner