Fotbolti.net
16.10.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stefán Árni spáir í 4. umferð Bestu eftir skiptingu

Stefán Árni Pálsson.

Stefán Árni Pálsson.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Spámaður
Besta deild karla er á lokametrunum, aðeins tvær umferðir eru eftir af mótinu.

Það eru leikir í dag og svo er einnig spilað á morgun og á mánudagskvöld. Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson tók að sér að spá í leikina.
Efri hluti
Breiðablik 1 - 2 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Þetta verður jafn leikur. Erfitt fyrir Víkinga að gíra sig í þessa leiki. Blikar komast yfir en Víkingur skorar tvö mörk í seinni hálfleik.

Keflavík 1 - 4 KR (12:00 á morgun)
Þetta er vissulega á grasi. En Keflavík er bara fast í sjötta sætinu og KR ætlar að tryggja sér annað sætið. Þetta verður easy fyrir KR. Aron Sig skorar þrennu.

Fram 2 - 0 ÍA (19:15 á mánudag)
Framarar eru enn að reyna ná þessu 2. sæti, sem verður mjög erfitt, og ná að vinna þennan leik. Skagamenn verða flatir í þessu leik.

Neðri hluti
ÍBV 0 - 3 FH (17:00 í dag)
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Eyjamenn koma inn eftir að vera fallnir. En FH er á góðum stað og gera þetta faglega. Þægilegur sigur.

Valur 0 - 3 KA (14:00 á morgun)
Valsmenn eru bara alveg hættir. KA að berjast fyrir lífi sínu. Þetta verður bara vel sannfærandi hjá KA. Þeir þurfa þennan sigur eins og súrefni. Adam Ægir skorar 2 mörk.

Þór 1 - 1 Stjarnan (14:00 á morgun)
Þórsarar verða með yfirhöndina í leiknum, enda mun meira undir hjá þeim. En Stjarnan nær í ódýrt jöfnunarmark undir lokin og heimamenn missa risa 2 stig.

Fyrri spámenn:
Brynjar Bergsson (5 réttir)
Damir Muminovic (4 réttir)
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Anton Ingi (3 réttir)
Gummi Tyrfings (3 réttir)
Óðinn Bjarka (3 réttir)
Tómas Óli (3 réttir)
Daníel Freyr (3 réttir)
Tómas Guðmunds (3 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Hinrik Harðar (2 réttir)
Stefán Páls (2 réttir)
Karl Ágúst (2 réttir)
Mattías Kjeld (2 réttir)
Viðar Örn (2 réttir)
Helga Rut (2 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Bjartur Bjarmi (0 réttir)
Spáir því að Aron bæti markametið í þessari umferð.

Spáir því að Aron bæti markametið í þessari umferð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar fara til Vestmannaeyja.

FH-ingar fara til Vestmannaeyja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adam fer á gamla heimavöllinn.

Adam fer á gamla heimavöllinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.25+5060
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik25+336
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur25-531
2Stjarnan25-1231
3FH25-430
4KA25-1026
5Þór25-3324
6ÍBV25-1619
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.