Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. apríl 2021 18:00
Victor Pálsson
Segja allar líkur á að Pogba reyni að fara í sumar
Mynd: Getty
Vefmiðillinn Tuttosport segir allar líkur á að miðjumaðurinn Paul Pogba reyni að kveðja lið Manchester United í sumar.

Það er oft rætt um framtíð leikmannsins sem hefur þó staðið sig vel á þessu tímabili og er samningsbundinn til 2022.

Tuttosport segir að brottför Pogba henti bæði honum og félaginu en endurkoma til Juventus er nefnd til sögunnar.

Pogba kom til Man Utd frá Juventus sumarið 2016 og kostaði félagið 90 milljónir punda.

Tími Pogba í Manchester hefur verið upp og niður en margir bjuggust við meira frá franska landsliðsmanninum.

Ef marka má þessar heimildir þá mun Pogba horfa í kringum sig í sumar og er opinn fyrir því að kveðja England.
Athugasemdir
banner
banner