Fotbolti.net
01.04.23 - 20:52
Brynjar Ingi Erluson

Arteta hress á blaðamannafundi: Dreymi rosalega villta drauma

Mikel Arteta

Mikel Arteta

Canon

Mynd: Getty Images

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var hress á blaðamannafundi eftir 4-1 sigurinn á Leeds í dag en liðið er áfram með átta stiga forystu í efsta sæti deildarinnar.
Arsenal hefur höndlað pressuna í titilbaráttunni vel og ekki leyft Manchester City að slá sig út af laginu.

„Við höfum sýnt mikinn stöðugleika allt tímabilið. Morgundagurinn er alltaf sá mikilvægasti og að gera betur á morgun en í dag.“

Arsenal á þrjá erfiða útileiki eftir gegn Liverpool, Newcastle og Manchester City. Þar sér Man City fyrir sér að geta komist betur inn í titilbaráttuna en Arteta segir að leikmenn Arsenal geta aðeins stjórnað eigin örlögum.

„Við getum ekki stjórnað því hvað þeir gera. Við þurfum að einbeita okkur á því sem við getum stjórnað og spila eins vel og við getum til að halda áfram að vinna leiki.“

Gabriel Jesus var í fyrsta sinn í byrjunarliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni síðan fyrir heimsmeistaramótið og hélt hann upp á það með að skora tvö mörk.

„Ég er svo ánægður fyrir hans hönd og alla þá sem hjálpuðu til við að koma honum aftur á völlinn. Hann kemur inn með gæði og óútreiknanleika í hópinn.“

Leandro Trossard kom til Arsenal frá Brighton í janúar en hann hefur síðan þá lagt upp sjö mörk fyrir liðið. Arteta var spurður hvort hann hefði getað séð þetta fyrir í sínum villtustu draumum en svar hans var ansi gott.

„Draumar mínir eru rosalega villtir. Nei, svona í alvöru, við vissum af gæðum hans og hvað hann gæti komið með inn í þetta lið. Hann getur spilað á hægri, vinstri og sem miðjumaður eða verið fölsk nía og hefur virkilega skilað sínu fyrir liðið. Hann er að taka ábyrgðina á sig til að láta hlutina gerast og við elskum hann,“ sagði Arteta.
Leandro Trossard hefur lagt upp sjö mörk fyrir Arsenal

Leandro Trossard hefur lagt upp sjö mörk fyrir Arsenal

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.