01.05.16 - 20:01
Gabríel Sighvatsson
Derby Carrillo: Feginn að snjórinn sé farinn
Auglýsing

Derby Carrillo hélt hreinu í fyrsta leik.

Mynd: ÍBV

Derby Carrillo, markmaður ÍBV átti mjög góðan leik þegar ÍBV vann ÍA með fjórum mörkum gegn engu.
„Þetta eru frábær úrslit, fyrsti leikurinn er alltaf erfiður en við börðumst og náðum í góð úrslit fyrir stuðningsmennina hérna heima\" sagði Derby.
Útköstin vöktu athygli í dag en hann hlóð nokkrum sinnum í gríðarlöng köst upp völlinn sem gerði ÍBV kleift að sækja hratt og eitt af þeim endaði meira að segja sem stoðsending.
„Köstin eru allt í lagi en aðalmálið er að strákarnir voru fljótir að hreyfa sig og gáfu mér þannig tækifæri á að koma boltanum á þá,\"
Aðspurður um lífið á Íslandi kvaðst hann ánægður.
„Ísland er mjög fallegt land, þetta hefur verið frábært fyrir mig, ég er mjög ánægður með að snjórinn sé farinn og nú bíður maður bara eftir að grasið fari að grænka og kíki kannski a nokkra fossa en aðalatriðið er að vinna vel fyrir liðið og reyna að ná í góð úrslit.\"