Fotbolti.net
25.07.26 - 13:10
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal kannar stöðuna á Vini Jr

Vini Jr til Arsenal?

Vini Jr til Arsenal?

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal eru alvarlega að kanna þann möguleika á að fá brasilíska sóknarmanninn Vinicius Jr frá Real Madrid í sumarglugganum. Þetta segir hinn afar áreiðanlegi David Ornstein hjá Athletic.
Engar viðræður hafa enn átt sér stað á milli Arsenal og Real Madrid. Ornstein segir hins vegar að möguleg kaup á leikmanninum hafi þegar fengið grænt ljós á öllum stjórnstigum hjá Arsenal.

Vini Jr er 26 ára gamall vængmaður og hefur um árabil verið í fremstu röð í heiminum. Hann hefur jafnframt verið einn af lykilmönnum Real Madrid.

Samningur Brasilíumannsins rennur út næsta sumar og viðræður um framlengingu hafa ekki skilað árangri. Real Madrid er því sagt reiðubúið að selja hann í sumar frekar en að eiga á hættu að missa hann án greiðslu að ári.

Áhugi Arsenal er enn á frumstigi og alls óvíst hvort þreifingar félagsins leiði til formlegra viðræðna eða tilboðs.

Vini Jr gekk til liðs við Real Madrid frá Flamengo árið 2018 og hefur síðan komið að 228 mörkum í 375 leikjum fyrir félagið. Á þeim tíma hefur hann orðið spænskur meistari þrisvar og unnið Meistaradeildina í tvígang.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.