Fotbolti.net
25.07.26 - 13:11
Brynjar Ingi Erluson

Fyrrum Valsarinn verður sá dýrasti í sögu Celtic

Kasper Högh er á leið til Celtic

Kasper Högh er á leið til Celtic

Canon

Mynd: EPA

Skosku meistararnir í Celtic eru að landa danska framherjanum Kasper Högh frá Bodö/Glimt. Félagið greiðir metfé fyrir Högh, sem spilaði um skamma hríð með Val hér á landi.
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
TENGT EFNI

Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh

Högh er 25 ára gamall danskur framherji sem hefur farið á kostum í Noregi undanfarin ár og raðað inn mörkum fyrir Bodö/Glimt.

Frá því hann gekk til liðs við félagið árið 2024 hefur hann skorað 54 mörk og gefið 22 stoðsendingar í 103 leikjum.

Högh vakti ekki síst athygli í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð. Þar kom hann að átta mörkum í tólf leikjum þegar Bodö/Glimt komst óvænt í sextán liða úrslit keppninnar.

Celtic hefur átt í viðræðum við norska félagið undanfarna daga og nú náð samkomulagi um kaup á framherjanum. Kaupverðið er rúmar ellefu milljónir punda og verður Högh því dýrasti leikmaður í sögu Celtic.

Hann gengst undir læknisskoðun í næstu viku og skrifar að henni lokinni undir langtímasamning við skoska stórveldið.

Áhugafólk um íslenskan fótbolta ætti að kannast við Högh en hann lék fimm leiki með Val á láni frá Randers sumarið 2020. Hann gekk til liðs við félagið undir lok júlí en sneri aftur til Danmerkur eftir tímabilið, en á tíma hans hjá Val tókst honum ekki að slá Patrick Pedersen út úr liðinu er það varð Íslandsmeistari.

Leiðin hefur legið hratt upp á við síðan þá. Auk þess að hafa slegið í gegn með Bodö/Glimt hefur Högh leikið fjóra A-landsleiki fyrir Danmörku og skorað eitt mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.