Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 01. maí 2021 13:10
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Brighton og Leeds: Phillips og Costa ekki með
Bamford er á sínum stað en Costa er meiddur.
Bamford er á sínum stað en Costa er meiddur.
Mynd: Getty Images
Annar leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni hefst klukkan 14 þegar Brighton og Leeds United mætast í 34. umferðinni.

Brighton er enn ekki sloppið við fall en liðið er með sjö stigum meira en Fulham sem situr í fallsæti. Leeds hefur átt gott tímabil í vetur og situr liðið í níunda sæti deildarinnar, fyrir ofan Arsenal á meðal annars.

Graham Potter, stjóri heimamanna, gerir eina breytingar frá tapleiknum slæma gegn Sheffield United um síðustu helgi. Dan Burn kemur inn í liðið fyrir Jakub Moder.

Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, gerir tvær breytingar frá 0-0 jafnteflinu gegn Manchester United í síðustu umferð.

Robin Koch og Mateusz Klich og koma inn fyrir Helder Costa og Kalvin Phillips.

Brighton: Sanchez, Webster, Dunk, White, Veltman, Gros, Bissouma, Burn, Trossard, Maupay, Welbeck.

Leeds: Meslier, Ayling, Llorente, Koch, Alioski, Struijk, Dallas, Klich, Roberts, Harrison, Bamford.
Athugasemdir
banner
banner