Fotbolti.net
01.05.21 - 17:31
Brynjar Óli Ágústsson

Laugi Baldurs: Vantaði tiltrú í liðið þegar við lentum undir

Auglýsing
Laugi Baldurs: Vantaði tiltrú í liðið þegar við lentum undir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Þróttur töpuðu ílla á móti Víking Ólafsvík um hádegið í dag og duttu þeir þá úr leik í Mjólkurbikarnum.
„Mér fannst leiknum vera kaflaskiptur. Mér fannst við vera góðir í fyrsta hálftímann, sköpuðum mikið af fínum stöðum og færum til þess að skora mark," sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari Þróttar eftir leikinn.

„Við fáum svo á okkur mark eftir skyndisókn og þá fannst mér fara úr okkur máttur og kraftur eftir það," sagði Laugi.

Það var mikill munur á fyrri og seinni hálfleiknum.

„Mér fannst vanta tiltrú í liðið þegar við lentum undir. Við höfðum ekki alveg trú á því að við gætum skorað mörk og komið til baka inn í leikinn. Það var samt sem áður kaflar í leiknum þar sem við áttum möguleika á að gera betur, sköpuðum okkur góðar stöður. Ég var ekki nægilega sáttur með seinni hálfleikinn."

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.