Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. maí 2021 17:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikar kvenna: FH skoraði tíu gegn Breiðhyltingum
Selma Dögg gerði fernu fyrir FH.
Selma Dögg gerði fernu fyrir FH.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Það er búið að vera nóg um að vera í 2. umferð Mjólkurbikars kvenna á þessum laugardegi. Fótboltasumarið er svo sannarlega komið á fleygiferð.

FH, sem er spáð mjög góðu gengi í Lengjudeildinni í sumar, valtaði yfir ÍR, 10-1. Selma Dögg Björgvinsdóttir skoraði fernu fyrir FH í leiknum. Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir gerði tvennu og það gerði Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir líka.

KR er komið áfram eftir 2-0 sigur á HK í Lengjudeildarslag, og Afturelding lagði Hauka sömuleiðis í Lengjudeildarslag. Hin bandaríska Jade Gentile skoraði þrennu fyrir Aftureldingu.

Þá kom Víkingur Reykjavík til baka í seinni hálfleik gegn Fjölni og Augnablik vann sigur á ÍA á Kópavogsvelli.

KR 2 - 0 HK
1-0 Ingunn Haraldsdóttir
2-0 Hildur Björg Kristjánsdóttir

Afturelding 3 - 1 Haukar
Mörk Aftureldingar: Jade Gentile 3

FH 10 - 1 ÍR
1-0 Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir ('7)
2-0 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('14)
3-0 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('29)
4-0 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('34)
5-0 Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir ('48)
5-1 Sigríður Dröfn Auðunsdóttir ('50)
6-1 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('57)
7-1 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('64)
8-1 Þóra Kristín Hreggviðsdóttir ('67)
9-1 Selma Dögg Björgvinsdóttir ('69)
10-1 Arna Sigurðardóttir ('75)

Fjölnir 1 - 2 Víkingur R.
1-0 Markaskorara vantar
1-1 Dagný Rún Pétursdóttir
1-2 Dagný Rún Pétursdóttir

Augnablik 4 - 2 ÍA
0-1 Anna Þóra Hannesdóttir
1-1 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
2-1 Eydís Helgadóttir
2-2 Dagný Halldórsdóttir
3-2 Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
4-2 Margrét Lea Gísladóttir

Athugasemdir
banner
banner
banner