Arna Kristinsdóttir er gengin til liðs við Tindastól á láni frá Þór/KA en þetta kom fram í tilkynningu frá Akureyrarliðinu í gær.
Arna, sem er fædd árið 2000, á að baki 77 leiki með meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur en hún lék sjö leiki með Þór/KA á síðasta tímabili og hefur einnig spilað Hömrunum í 1. og 2. deild.
Hún spilar stöðu miðvarðar og mun nú leika fyrir Tindastól á komandi tímabili á láni frá Þór/KA.
Arna spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið í gær er það vann HK 3-2 í Mjólkurbikarnum.
Tindastóll spilar í Lengjudeildinni þetta árið eftir að hafa fallið úr efstu deild á síðasta ári.
Athugasemdir