Fotbolti.net
16.11.26 - 20:15
Magnús Atlason

Brynjólfur óviss um markið - „Ég fagnaði ekki of mikið“

Auglýsing
Skallinn.

Skallinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Brynjólfur Willumsson var sáttur eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í kvöld. Hann skoraði fyrsta mark leiksins en það var jafnframt hans fyrsta A-landsliðsmark í keppnisleik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
"Þetta er bara geggjuð tilfinning að vera búinn að klára þetta. Við settum okkur markmið að vinna þennan riðil og það er mjög góð tilfinning að vera búinn að gera þetta eins og við gerðum þetta."

Á 25. mínútu átti Orri Steinn Óskarsson þrumuskot í slá. Hann hrökk svo af línunni og út í teiginn þar sem Brynjólfur kom á siglingunni og stangaði boltann í netið. "Ertu viss um að þetta hafi verið þitt mark?"

"Ég var ekki alveg viss þannig að ég fagnaði ekki of mikið. Ég er ennþá ekki 100% viss hvort hann hafi verið inni eða ekki."

"Ég vona að Orri geti gefið mér þetta, hann á nóg af mörkum," sagði Brynjólfur léttur.

Árángur Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar hefur verið góður, ósigraðir og með fjórum stigum frá fullu húsi. "Þetta hlýtur að vera eitthvað sem hægt er að byggja ofan á?"

"Já algjörlega, þegar maður horfir yfir alla keppnina þá er þetta búið að vera fagmannlegt. Auðvitað koma einhver hikst á milli, jafntefli og svoleiðis en við létum það ekkert hafa áhrif á okkur og við kláruðum þetta með stæl."

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.