Fotbolti.net
16.11.26 - 19:37
Brynjar Ingi Erluson

Miðjumaður Mónakó til Liverpool?

Miðjumaður Mónakó til Liverpool?
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool íhugar alvarlega að kaupa senegalska miðjumanninn Lamine Camara frá Mónakó í janúar, en frá þessu greinir James Pearce hjá Athletic.
Chelsea reyndi að kaupa hinn 22 ára gamla Camara undir lok sumargluggans, en hætti við á síðustu stundu og var miðjumaðurinn afar svekktur með þá niðurstöðu.

Á þeim tíma bárust einnig fregnir af því að Liverpool hefði verið í sambandi við Camara og gefið honum fyrirheit um að félagið myndi reyna að fá hann til sín á næsta ári.

Samkvæmt Pearce er Liverpool nú að íhuga að setja málið í næsta gír og ganga frá kaupunum strax í janúar.

Upphaflega hafði félagið ætlað sér að bíða fram á næsta sumar, en gæti þurft að bregðast fyrr við þar sem Chelsea hefur enn mikinn áhuga á miðjumanninum.

Pearce segir Liverpool þegar hafa lagt mikla vinnu í að undirbúa félagaskiptin, en félagið hefur þó ekki enn lagt fram formlegt tilboð.

Camara er einn mest spennandi miðjumaðurinn á markaðnum um þessar mundir, en Liverpool hefur einnig sýnt Manu Kone hjá Roma og Adam Wharton hjá Crystal Palace áhuga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.