16.11.26 - 22:13
Kári Snorrason
Föðurlandið hjálpaði Ísaki í kuldanum - „Gríðarlega stórt skref að vinna riðilinn“
Auglýsing

Frá því í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frá því í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég er ótrúlega stoltur af liðinu. Við erum búnir að fá á okkur eitt mark í þessum riðli og búnir að skora mikið af mörkum. Þetta er gríðarlega stórt skref að vinna riðilinn og vonandi tryggir þetta okkur umspilssæti á EM eftir tvö ár,“ sagði landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í kvöld.
Með sigrinum tryggði Ísland sér toppsætið í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar og ljóst að liðið er komið upp í B-deild.
Með sigrinum tryggði Ísland sér toppsætið í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar og ljóst að liðið er komið upp í B-deild.
„Það var svolítið kalt en shoutout á föðurlandið hjá 66°Norður sem við vorum margir í. Mér var bara heitt á efri búknum en svolítið kalt á eyrunum,“ sagði Ísak aðspurður um kuldann á Laugardalsvelli.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
