Fotbolti.net
16.11.26 - 22:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fékk að vita með U21 á fréttamannafundi eftir leik

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
U21 landsliðið tapaði með grátlegum hætti gegn Grikklandi í umspilinu fyrir Evrópumótið í kvöld.

Grikkir jöfnuðu í uppbótartíma annan leikinn í röð eftir að Daníel Tristan Guðjohnsen hafði komið Íslandi yfir eftir rúmlega klukkutíma leik. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni þar sem Grikkir höfðu betur.
U21: EM-draumurinn úti eftir grátlegt tap í Aþenu
TENGT EFNI

U21: EM-draumurinn úti eftir grátlegt tap í Aþenu

Vítaspyrnukeppnin var í gangi þegar fréttamannafundur Arnars Gunnlaugssonar, A-landsliðsþjálfara, stóð yfir eftir 3-0 sigur á Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld. Fréttamaður Fótbolta.net tjáði honum niðurstöðuna.

„Hvernig fór?" spurði Arnar og var svo svekktur þegar hann fékk svarið.

„Þú sérð viðbrögðin. Það er auðvitað svekkjandi. Strákarnir geta samt verið mjög stoltir af frammistöðunni."

„Framtíðin er svo sannarlega björt. Það eru nokkrir leikmenn í þessum hópi sem eiga eftir að gera sterkt tilkall til þess að komast í minn hóp á næstu árum. Þetta er auðvitað svekkjandi en svona er fótboltinn. Við þekkjum það líka að tapa leikjum og vera súrir og svekktir, en þá þarf bara að mæta aftur sterkur til leiks."
U21 landsliðið tapaði með grátlegum hætti.

U21 landsliðið tapaði með grátlegum hætti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.