16.11.26 - 22:10
Kári Snorrason
Orri ætlar að æfa vítin - „Leit út fyrir að vera inni “
Auglýsing

Landsliðsfyrirliðinn ánægður með frammistöðuna.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Leit út fyrir að vera inni.“

„Ég er mjög ánægður. Við náum markmiðinu okkar í riðlinum. Fín og sannfærandi frammistaða í dag,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg fyrr í kvöld.
Með sigrinum tryggði Ísland sér toppsætið í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar og ljóst að Ísland er komið upp í B-deild.

Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Sýndist boltinn vera inni
Orri átti þrumuskot sem fór í slána og niður rétt áður en Brynjólfur Willumsson fylgdi eftir og setti boltann inn. Orri var spurður hvort að hann ætti markið.
„Ég veit það ekki, það skiptir mig ekki of miklu máli. Ég held að hann hafi verið inni en ég ætla ekki dvelja mikið við það. Mér fannst bara vel gert hjá Binna að fylgja vel eftir og tryggja að boltinn væri inni. En ég sá endursýningu á þessu og hann leit út fyrir að vera inni en ég er ekkert mikið að stressa mig á því.“
Ætlar að æfa vítin
Orri Steinn Óskarsson brenndi af vítaspyrnu gegn Búlgaríu í síðasta glugga og hefur Andri Lucas Guðjohnsen farið á punktinn tvívegis síðan þá og skorað í bæði skiptin.
Er Andri vítaskytta liðsins?
„Já svo lengi sem hann skorar þá á hann skilið að taka víti. Andri er auðvitað bara góð vítaskytta og í þessum bransa snýst þetta bara um að vinna og víti eru mikilvægur partur af leiknum. Ég hugsa að ég fari kannski aðeins að æfa þetta svo ég geti aðeins matchað hann en bara mjög glaður að Andri sé að nýta sín víti og sín færi,“ sagði Orri.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Orri meðal annars um Aron Einar, sem lék sinn síðasta landsleik í kvöld.