16.11.26 - 18:04
Brynjar Ingi Erluson
„Ég held að Orri muni leggja fram einhverja kæru“

Orri átti hörkuskot sem fór í þverslá og niður, en boltinn virtist inni. Brynjólfur fylgdi hins vegar vel á eftir

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eiður Smári er ánægður með það sem hann hefur séð til þessa

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland er með 2-0 forystu gegn Lúxemborg í hálfleik í lokaumferð C-deildar Þjóðadeildarinnar og stefnir allt í að liðið tryggi sér toppsæti riðilsins.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Brynjólfur Andersen Willumsson og Andri Lucas Guðjohnsen skoruðu mörkin.
Það tók smá tíma að brjóta ísinn en Brynjólfur gerði það á 25. mínútu er hann fylgdi á eftir þversláarskoti Orra Steins Óskarsson og þá bætti Andri við öðru úr vítaspyrnu sem var hans sjötta mark í keppninni.
Eiður Smári Guðjohnsen og Kári Árnason eru í settinu á SÝN, en þeir eru nokkuð ánægðir með það sem þeir hafa séð til þessa.
„Jú, eins og síðast. Það hafa verið frábærir spilkaflar sérstaklega á milli Hákonar, Andra og Orra. Óheppnir að skapa ekki fleiri færi en Lúxemborg á ekki séns og varla skot á markið. Þeir hóta lítið, spila ágætlega á köflum en lítið að hóta,“ sagði Kári.
Eiður er ánægður með liðsheildina og vill sjá fleiri mörk.
„Sterkari liðsheild, betri einstaklingur og gert það fagmannlega. Við erum ekki búnir að vera frábærir, en góðir í því sem við gerum og gefum lítið færi á okkur og uppskerum tvö mörk sem er flott. Maður sér þetta ekki breytast í seinni hálfleik heldur er þetta spurning hversu stór verður sigurinn. Ef við höldum okkur við efnið eru menn sem eru hungraðir við að bæta við markareikninginn.“
Þá ræddi hann einnig mark Brynjólfs, en eftir að boltinn fór í netið sást Orri gera tilkall til marksins, enda átti hann hörkuskot í þverslána sem virtist fara inn fyrir marklínuna.
„Hann ver þetta frábærlega en ánægður með Brynjólf sem er fyrstur á seinni boltann. Orri mun leggja fram einhverja kæru. Hann mun kæra þetta!“ sagði Eiður í léttu gríni.