Fotbolti.net
16.11.26 - 21:07
Magnús Atlason

Gylfi einlægur: Hans verður sárt saknað

Auglýsing
Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum.

Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland vann sannfærandi 3-0 sigur á Lúxemborg fyrr í kvöld. Fótbolti.net náði Gylfa Þór Sigurðssyni í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
"Síðustu tveir gluggar búnir að vera mjög góðir, jákvæðir, jákvæð þróun á leik liðsins, sérstaklega varnarlega en við höfum líka verið að skora mikið af mörkum. Það er vonandi eitthvað sem við náum að halda áfram að gera, bæta og spila enn betur í næstu verkefnum."

Aron Einar Gunnarsson spilaði sinn síðasta leik í Íslensku landsliðstreyjunni í dag. Gylfi og Aron hafa fylgst að lengi í gegnum tíðina. "Hvernig var þetta móment með honum út á velli áðan?"

"Bara erfitt, búnir að vera saman, ég veit ekki hvað lengi, í 17 ár eða eitthvað í landsliðinu og síðan plús öll yngri landsliðin. Það er soldið óraunverulegt að vera búinn að spila sinn síðasta leik með honum, nema ég sé að fara til Katar á næstunni," Sagði Gylfi hlæjandi.

"En bara yndislegt að fá að vera inn á vellinum með honum þegar hann er að ljúka sínum landsliðsferli. Bara fallegur endir á mögnuðum landsliðsferli."

Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari, féll frá á dögunum. Hann þjálfaði Gylfa hjá Crewe á Englandi þegar Gylfi var að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku.


"Ég votta fjölskyldu og vinum innilega samúðarkveðjur. Við áttum frábæra tíma í Crewe, mín fyrstu kynni af alvöru deildarfótbolta."

"Ég naut þess mikið að spila fyrir hann og vera með honum. Hann sótti mig alltaf á hótelið á morgnana og skutlaði mér á æfingar. Það hafði mikil áhrif á minn feril, sérstaklega til að byrja með í Bretlandi. Hans verður sárt saknað."

Horfðu á allt viðtalið efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.