Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   fös 01. maí 2026 15:51
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeildin: Löglegt mark tekið af Njarðvík í grannaslagnum
Lengjudeildin
Boltinn inni en ekki dæmt mark.
Boltinn inni en ekki dæmt mark.
Mynd: Aðsend
Grindavík 0 - 0 Njarðvík

Önnur umferð Lengjudeildarinnar fór af stað með grannaslag Grindavíkur og Njarðvíkur. Grindavík gerði jafntefli gegn Vestra í fyrstu umferð en Njarðvík tapaði gegn Þrótti.

Það gerðist stórt atvik í fyrri hálfleik í leiknum í Grindavík í dag þegar löglegt mark var tekið af Njarðvík. Boltinn fór innfyrir línuna eftir hornspyrnu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd (neðst í fréttinni er myndband). En þetta gerðist hratt og aðstoðardómarinn Guðni Freyr Ingvason og Pétur Guðmundsson aðaldómari leiksins dæmdu ekki mark.

Njarðvíkingar hættulegri í fyrri hálfleik en staðan 0-0 í hálfleik. Á 76. mínútu fékk varamaðurinn Heiðar Snær Ragnarsson dauðafæri fyrir heimamenn. Hann komst einn gegn Guy Smit í marki Njarðvíkinga. Hann þrengdi færið um of hægra megin í teignum og Guy varði í horn.

Nokkrum mínútum seinna átti Rafael Victor fínustu tilraun frá vítateigslínu en aftur varði Guy vel. Grindavík fékk betri færi í seinni hálfleik en markalaust jafntefli niðurstaðan og Njarðvíkingar hafa því ekki náð að skora mark á fyrstu 180 mínútum sínum á mótinu.

Aðrir leikir umferðarinnar:

föstudagur 1. maí
16:00 Afturelding-Völsungur (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Þróttur R.-ÍR (AVIS völlurinn)
19:15 HK-Ægir (Kórinn)
19:15 Grótta-Leiknir R. (Vivaldivöllurinn)

laugardagur 2. maí
14:00 Fylkir-Vestri (tekk VÖLLURINN)


Slapp
banner
banner