Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. júní 2021 11:39
Ívan Guðjón Baldursson
Eric Garcia til Barcelona (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Barcelona er búið að staðfesta komu tveggja leikmanna frá Manchester City á innan við sólarhring eftir að Eric Garcia var kynntur snemma í morgun.

Garcia er kynntur tæpum sólarhringi eftir argentínska sóknarmanninum Sergio Agüero.

Báðir koma þessir leikmenn á frjálsri sölu eftir að hafa runnið út á samningi við Englandsmeistarana.

Garcia er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Börsunga og er 400 milljón evra söluákvæði í samningnum. Til samanburðar þá er hinn 33 ára gamli Agüero með 100 milljón evra ákvæði.

Garcia er tvítugur miðvörður sem ólst upp hjá Barcelona en var fenginn til City 2017. Auk þess að hafa spilað 35 keppnisleiki fyrir City á hann sjö A-landsleiki að baki fyrir Spán og fer eflaust með liðinu á EM í sumar.


Athugasemdir
banner
banner