Dortmund er búið að staðfesta komu Gregor Kobel til félagsins og mun hann berjast við samlanda sína Roman Bürki og Marvin Hitz um byrjunarliðssæti á milli stanganna.
Bürki er aðalmarkvörður Dortmund og Hitz varamarkvörður en Kobel hefur gert frábæra hluti í markinu hjá Stuttgart undanfarin tvö ár.
Búist er við að Kobel muni veita Bürki alvarlega samkeppni um byrjunarliðssæti enda borgaði Dortmund 15 milljónir evra fyrir manninn.
Kobel er 23 ára gamall og á 22 leiki að baki fyrir yngri landslið Sviss.
Athugasemdir