Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. júní 2021 13:05
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur KSÍ 
Þórður Þórðarson hættir með U19 kvenna (Staðfest)
Þórður var í þjálfarateymi U21 karla á Evrópumótinu í Ungverjalandi í mars.
Þórður var í þjálfarateymi U21 karla á Evrópumótinu í Ungverjalandi í mars.
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KSÍ tilkynnti á vef sínum í dag að Þórður Þórðarson sé að hætta sem þjálfari U19 ára landsliðs kvenna. Hann mun starfa með liðið út þennan mánuð.

Þar kemur fram að KSÍ og Þórður hafi komist að samkomulagi um starfslok hans með liðið.

Þórður hefur stýrt U19 liði kvenna við góðan orðstír í 46 leikjum frá árinu 2015.

U19 kvenna æfir dagana 7.-10. júní á Selfossi og hafa 22 leikmenn frá 12 félögum verið boðaðir til æfinganna, sem eru hluti af undirbúningi fyrir undankeppni EM 22/23 sem hefst í haust.

Þórður mun stýra æfingunum og ljúka störfum í lok júnímánaðar.

„KSÍ óskar Þórði alls hins besta og velfarnaðar í næstu verkefnum," segir á vef KSÍ.
Athugasemdir
banner
banner
banner