Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. júní 2021 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Watford kaupir Imran Louza frá Nantes (Staðfest)
Imran Louza er hér í baráttunni við Angel Di Maria
Imran Louza er hér í baráttunni við Angel Di Maria
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur fest kaup á Imran Louza frá franska félaginu Nantes. Hann gerir sex ára samning við Watford.

Louza, sem er 22 ára gamall, er miðjumaður að upplagi en hann skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú fyrir Nantes í frönsku deildinni á tímabilinu.

Hann gerir sex ára samning við Watford sem tryggði sig upp í úrvalsdeildina á dögunum.

Watford greiðir um 8,7 milljónir punda fyrir leikmanninn en þetta eru fyrstu kaupin hjá félaginu í sumar.

Ashley Fletcher er einnig á leið til félagsins á frjálsri sölu frá Middlesbrough en hann mun ganga til liðs við félagið um næstu mánaðarmót.
Athugasemdir
banner
banner