Fotbolti.net
01.07.20 - 22:35
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir West Ham og Chelsea: Antonio og Pulisic bestir

Einkunnir West Ham og Chelsea: Antonio og Pulisic bestir
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham vann óvæntan sigur gegn Chelsea er liðin mættust í síðasta leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Tvenna frá Willian dugði Chelsea ekki því Tomas Soucek, Michail Antonio og Andriy Yarmolenko skoruðu allir fyrir Hamrana.

Antonio var valinn maður leiksins af Sky Sports og fékk hann 9 fyrir sinn þátt í sigrinum. Hann skoraði annað mark West Ham og lagði það þriðja upp.

Yarmolenko, Soucek, Declan Rice og Jarrod Bowen, sem átti tvær stoðsendingar, fengu 8 í einkunn.

Í liði Chelsea var Christian Pulisic bestur og fékk 9 fyrir sinn þátt. Willian var næstbestur með 8 eftir að hafa skorað magnað aukaspyrunmark og úr vítaspyrnu.

Antonio Rüdiger og Cesar Azpilicueta voru verstu menn vallarins og fengu 4 í einkunn.

West Ham: Fabianski (5), Fredericks (6), Ogbonna (7), Diop (5), Cresswell (6), Soucek (8), Rice (8), Bowen (8), Fornals (6), Lanzini (6), Antonio (9).
Varamenn: Wilshere (6), Yarmolenko (8)

Chelsea: Kepa (6), Azpilicueta (4), Christensen (5), Rudiger (4), Alonso (6), Barkley (5), Kovacic (5), Kante (5), Willian (8), Abraham (6), Pulisic (9).
Varamenn: Mount (7), Giroud (7), Loftus-Cheek (6)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Hull City3+37
3Arsenal2+46
4Chelsea2+26
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Leeds3+15
9Brighton3+34
10Everton2+24
11Sunderland304
12Man Utd2+13
13Ipswich Town3-43
14Crystal Palace3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.