Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
Árni Freyr: Tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við
Halli Hróðmars: Getum náð í úrslit líka þó að það dynji aðeins á okkur
„Ákváðum þetta í raun bara klukkan hálf ellefu í morgun"
Agla María: Frammistaðan hefur alveg verið betri
Nik Chamberlain: Enginn vafi á því að við myndum vinna þennan leik
Pétur Rögnvalds: Óhress með sjálfan mig
Hulda Ösp: Ég var bara á réttum stað og á réttum tíma
Rakel Grétars: Það gekk ekkert upp
   fim 01. júlí 2021 22:24
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Jóhannes Karl: Það þarf að mæta í seinni hálfleikinn
Lengjudeildin
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var bara gott að ná að klára þetta úr því sem komið var. Haukarnir mættu mjög sterkir í seinni hálfleikinn og við að sama skapi þurfum kannski aðeins að læra að vera yfir. Það er ekkert nóg að klára góðann fyrri hálfleik, það þarf að mæta í seinni hálfleikinn og leggja inn vinnuna," sagði Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari KR, eftir 3-4 sigur á Haukum í kvöld.

KR var með mikla yfirburði í fyrri hálfleik en virtust hreinlega ekki mæta til leiks í upphafi seinni hálfleiks, en Haukakonur mættu tvíefldar til leiks.

„Í staðinn fyrir að koma út í seinni hálfleikinn og klára leikinn, þá erum við bara ekki að vinna neina vinnu. Það var léleg pressa, við gefum Haukunum tíma og Haukarnir eru bara alltof gott lið til að við getum gefið þeim þennan tíma. Um leið og þær fá tíma þá nær þessum sendingum upp í gegn. Þær eru með mjög öfluga framlínu og geta búið til, það eru frábærir leikmenn þarna. Við lentum heldur betur í vandræðum í seinni."

Lestu um leikinn: Haukar 3 -  4 KR

Eftir að Haukar ná að minnka muninn í 1-3 og ná tökum á leiknum þá bætir KR við fjórða markinu og virðist vera að klára leikinn. Haukakonur voru þó langt því frá hættar og koma þessu í 3-4.

„Mér fannst í stöðunni 4-1 fannst mér við vera komin með tökin á leiknum aftur og svona ætluðum að fara að sigla þessu heim, en þær gefast ekkert upp. 4-2 kemur og svo einhvern veginn held ég að við höfum verið að hreinsa frá en hreinsum í eigin mann og í markið og þá var bara allt í upplausn. Ég er bara ánægður með reynsluna að fara ekkert á taugum, heldur bara klára þetta 4-3. Klára 3 stig og halda áfram veginn."

Bæði lið létu dómarann heyra það oft í leiknum. KR-ingar vildu vítaspyrnu á 14. mínútu og svo voru tvö mörk Hauka dæmd rangstæð.

„Heilt yfir held ég að Haukarnir séu mun óánægðari en við. Ég vildi að sjálfsögðu fá víti í fyrri hálfleik og fannst augljóslega farið í gegnum manninn þar en hann dæmir ekki og þessir rangstöðudómar sem Haukarnir fá gegn sér í seinni hálfleik virkuðu mjög tæpir, ég hef ekki séð þetta aftur en ég verð bara að treysta línuverðardómurum fyrir sínu hlutverki," hafði Jóhannes um dómgæsluna að segja.

Leikmannaglugginn er opinn og KR eru að líta í kringum sig.

„Við erum að missa leikmenn í nám eins og fleiri lið og erum alltaf að líta í kringum okkur. Eins og er er ekkert fast í hendi eða hægt að ræða ennþá. Við höfum augastað á að styrkja okkur eins og önnur lið."

Planið hjá KR er að spila í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili. „Eins og menn sáu í dag þá þarf allt að ganga upp. Þetta eru þrjú stig og við erum enn á toppnum og það verður bara að berjast fyrir því að vera þar," sagði Jóhannes að lokum.
Athugasemdir