Fotbolti.net
06.07.26 - 17:46
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Portúgals og Spánar: CR7 byrjar í Íberíuslagnum

Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: EPA

Portúgal og Spánn eigast við klukkan 19 í afar spennandi nágrannaslag í 16-liða úrslitum HM en þessar nágrannaþjóðir hafa átt jafnar innbyrðisviðureignir að undanförnu.

Þjóðirnar hafa þrisvar mæst í Þjóðadeildinni á síðustu árum eftir 3-3 jafntefli í riðlakeppni HM 2018 og markalaust jafntefli í undanúrslitum á EM 2012.

Roberto Martínez, þjálfari portúgalska liðsins, gerir eina breytingu frá liðinu sem sló Króatíu út í 32-liða úrslitum. Joao Félix kemur inn í liðið en Rafael Leao fer á bekkinn. Cristiano Ronaldo var tekinn af velli gegn Króötum en er áfram í byrjunarliðinu.

Spánn er með sama byrjunarlið og vann Austurríki afskaplega örugglega í síðustu umferð.

Englendingurinn Anthony Taylor dæmir leikinn.
Ronaldo skaut á fjölmiðlamenn: Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár
TENGT EFNI

Ronaldo skaut á fjölmiðlamenn: Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár

Lesendur Fótbolta.net búast við spænskum sigri. 74% lesenda spá því að Spánn fari áfram en 26% spá Portúgal áfram samkvæmt skoðanakönnun á forsíðu.

Portúgal: Costa, Joao Cancelo, Dias, Veiga, Nuno Mendes, Joao Neves, Vitinha, Pedro Neto, Fernandes, Joao Felix, Ronaldo.

(Varamenn: Jose Sa, Rui Silva, Nelson Semedo, Araujo, Dalot, Inacio, Samu, Matheus Luiz, Silva, Ruben Neves, Goncalo Ramos, Trincao, Leao, Goncalo Guedes, Francisco Conceicao)

Spánn: Simon, Porro, Cubarsi, Laporte, Cucurella, Gonzalez, Rodri, Yamal, Olmo, Baena, Oyarzabal.

(Varamenn: Raya, Joan Garcia, Pubill, Grimaldo, Eric Garcia, Llorente, Merino, Torres, Fabian, Gavi, Pino, Williams, Zubimendi, Munoz, Iglesias)

Fylgstu með leiknum í beinni hér


Lamine Yamal.

Lamine Yamal.

Canon

Mynd: EPA

Anthony Taylor dæmir leikinn.

Anthony Taylor dæmir leikinn.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.