Víkingar að endurheimta þrjá leikmenn - Aron Snær frá í nokkrar vikur

Aron fór meiddur af velli gegn KA á fimmtudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Utan hóps gegn KA en klár í slaginn á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg hefur verið frá í tæpt ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri og Stígur Diljan eru að snúa til baka.

Víkingur mætir ungverska liðinu Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar á Víkingsvelli annað kvöld.
Aron Snær Friðriksson, markvörður liðsins, verður fjarri góðu gamni en hann meiddist í leik gegn KA á fimmtudag. Ögmundur Kristinsson mun fylla í skarð Arons.
Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í aðdraganda leiksins og spurði hann út í stöðuna á markvörðunum tveimur.

TENGT EFNI
Aron studdist við hækjur í dag - Ömmi að öllum líkindum í markinu gegn Györ
„Þetta fór betur en á horfðist. Við vorum hræddir um að þetta væru alvarlegri meiðsli. Það lítur út fyrir að hann verði frá í tvær, þrjár vikur.“
Ögmundur hefur lítið spilað undanfarið ár en hann gekk til liðs við Víking á undanþágu frá KSÍ fyrr í sumar.
„Ég held að það hjálpi alveg að hann hafi fengið einhverjar alvöru mínútur. Þetta var hálftími sem hann fékk á móti KA. Fínt fyrir hann að fá smá leikæfingu fyrir þetta einvígi,“ segir Sölvi jafnframt.
Daníel Hafsteinsson var ekki í leikmannahóp Víkings gegn KA en Sölvi segir hann kláran í slaginn á morgun. „Hann er búinn að æfa síðustu tvo daga og er klár í að spila.“
Endurheimta menn úr meiðslum
Víkingar eru að endurheimta þrjá leikmenn sem hafa verið lengi frá, þá Daða Berg Jónsson, Stíg Diljan Þórðarson og Róbert Orra Þorkelsson.
„Það eru leikmenn sem eru búnir að vera fjarverandi lengi hjá okkur sem eru að komast nær því að spila. Ég get nefnt þar Daða, Stíg og Róbert. Við erum að fá marga til baka úr meiðslum,“ segir Sölvi en hann býst ekki við að þeir fái mínútur alveg strax.
„Þeir geta verið í hóp á morgun. Það geta fleiri verið í hóp en í deildarleik. Hvort þeir séu klárir í að spila mínútur efast ég um. Þeir þurfa lengri tíma til þess,“ sagði Sölvi að lokum.