Frakki flautar í Fossvoginum - Belgar í eyranu á Ívari Orra

Ívar Orri Kristjánsson fær VAR aðstoð frá Belgíu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ingi Jónsson.

Leikið verður í forkeppni í Evrópukeppnum félagsliða í vikunni en annað kvöld mun Víkingur taka á móti ungversku meisturunum í Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Franskir dómarar verða á leiknum en aðaldómari verður Romain Lissorgue. Hann hefur áður komið til Íslands en hann var fjórði dómari á leik Íslands og Svartfjallalands 2024.
Notast verður við VAR í leiknum á morgun en VAR dómarinn heitir Bastien Dechepy.

Teymi frá Noregi í Garðabænum
Á fimmtudag mætast Qarabag og Vestri í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Roman Jitari frá Moldóvu dæmir þann leik.
Seinna um kvöldið tekur Stjarnan á móti Víkingi frá Götu í Færeyjum í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Dómararnir í Garðabænum koma frá Noregi og verður Mohammad Usman Aslam aðaldómari.
Íslenskir dómarar í eldlínunni
Íslenskir dómarar verða í eldlínunni í vikunni. Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í Litáen þar sem Kauno Zalgiris tekur á móti Drita frá Kósovó. Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson verða aðstoðardómarar og Helgi Mikael Jónasson fjórði dómari.
Notast verður við VAR í leiknum en VAR dómararnir koma frá Belgíu. VAR dómarinn heitir Jan Boterberg.
Þá dæmir Jóhann Ingi Jónsson leik í Wales í forkeppni Sambandsdeildarinnar; Connah's Quay Nomads gegn Ballkani frá Kósovó. Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs verða aðstoðardómarar og Þórður Þorsteinsson Þórðarson fjórði dómari.