„Þurfa einhverjir að vera skemmtilegir fyrir aftan skjáinn“

Á leið til Viking Stavanger.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður var í sjokki á bekknum.“

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Bestu deildinni á tímablinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á leið til Viking Stavanger.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar vildu sjá rautt spjald fara á loft þegar Amin Cosic, leikmaður KR, steig ofan á Christian Greko Jakobsen í hornspyrnu í viðureign liðanna í síðustu viku.
Fótbolti.net við Amin, sem er á leiðinni til Viking Stavanger í Noregi, á dögunum og spurði hann út í atvikið.

TENGT EFNI
Sjáðu atvikið: Amin heppinn að fá ekki rautt?
„Þetta er fótbolti og sumir hlutir gerast inni á vellinum. Ég segi bara 'no comment', leyfi fólki bara að tala og ræða það sem þau vilja á TikTok og Twitter.
Það þurfa einhverjir að vera skemmtilegir á Twitter fyrir aftan skjáinn að skrifa einhverja hluti,“ sagði Amin léttur og vísar þar eflaust í X færslu Arons Elvars Finnssonar sem birti myndskeið af atvikinu og sagði að Amin ætti að byrja í leikbanni þegar hann snýr aftur heim úr atvinnumennsku.
Enginn draumaendir
Aðspurður um leikinn sjálfan sagði Amin endurkomuna góða en hann hefði viljað enda á sigri með KR.
„Þetta voru mjög skrítnar þrettán mínútur. Fengum mark á okkur frá markmanninum þeirra fyrir aftan miðju, maður var í sjokki á bekknum. Þetta var kannski enginn draumaendir. Maður hefði viljað enda þetta á sigri og fagna á Akureyri.
Að koma samt til baka úr 3-0 stöðu sýnir hversu góður karakterinn er og hversu mikið við höfum bætt okkur. Hefði þetta gerst á síðasta tímabili held ég að við myndum missa hausinn og leikurinn hefði örugglega endað 7-1,“ sagði Amin að lokum.

Þetta er svo innilega viljandi. Klárt rautt og Amin ætti með réttu að byrja í banni þegar hann kemur heim úr atvinnumennsku eftir max 2 ár pic.twitter.com/QKZQiQUTs5
— Aron Elvar Finnsson (@AronElvar97) July 2, 2026