Hjálpaði norsku félagi að skoða leikmenn á Íslandi

Daníel Darri og Aron Baldvin, aðstoðarþjálfari Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Darri starfar sem leikgreinandi fyrir Víking.

Daníel Darri Arnarsson er aðeins 19 ára gamall en er samt sem áður farinn að starfa sem leikgreinandi hjá Íslandsmeisturum Víkings.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 3. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Starf leikgreinanda verður sífellt mikilvægara í nútímafótbolta og hefur um leið skapað ný tækifæri fyrir fólk sem vill starfa áfram innan íþróttarinnar. Daníel Darri lýsti því við Fótbolta.net hvernig hann byrjaði í þessu.
„Ég var að gera mikið frítt og fólk gæti þurft að gera það fyrst. Þú uppskerir þá alltaf ef sú vinna er gerð vel og með áhuga," segir Daníel Darri.
Sjálfur byrjaði hann á því að skrifa um tölfræði og leikgreiningu á samfélagsmiðlum.
„Ég byrjaði til dæmis með Twitter-reikning þar sem ég var að tala um tölfræði og svoleiðis. Það leiddi út í það að ég fékk að hjálpa Vålerenga frá Noregi að skoða leikmenn á Íslandi."
Það varð upphafið að ferðalagi sem hefur farið hraðar af stað en hann gat ímyndað sér.
„Þaðan byrjar einhver tröppugangur. Ég er svo í Víking í dag og hef fengið að fara í nokkrar ferðir með yngri landsliðunum. Maður hefur fengið innsýn í skemmtilega og fjölbreytta leikstíla með því að fara inn í yngri landsliðin hjá Þórhalli Siggeirssyni, Ómari Inga (Guðmundssyni) og síðan Dóra Árna í einni ferð með U19 landsliðinu. Þetta hefur verið skemmtileg vegferð hingað til," sagði Daníel Darri, 19 ára gamall leikgreinandi Víkings, að lokum.

TENGT EFNI
19 ára leikgreinandi Íslandsmeistaranna