Fotbolti.net
01.07.26 - 13:25
Elvar Geir Magnússon

Leikmennirnir sex sem Berta vinnur í fyrir Arsenal

Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal.

Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Andrea Berta, yfirmaður fótboltamála hjá Englandsmeisturum Arsenal, hefur í nægu að snúast á skrifstofunni og Mirror segir hann vera að vinna í sex leikmönnum sem félagið hefur áhuga á að fá.

Arsenal hefur tryggt sér Piero Hincapie sem var á láni hjá félaginu á síðasta tímabili en hyggst bæta við í júlí. Þetta eru leikmennirnir sem Berta er sagður vera að vinna í:
- Arsenal hefur verið í viðræðum um Morgan Rogers sóknarmiðjumann Aston Villa.

- Félagið hefur áhuga á Bradley Barcola leikmanni Paris Saint-Germain og vill kanna hvort möguleiki sé á að fá hann.

- Þegar hefur verið gert tilboð í Bruno Guimaraes, brasilíska miðjumanninn hjá Newcastle.

- Bournemouth hefur fengið fyrirspurn varðandi miðjumanninn Alex Scott.

- Arsenal er sagt hafa rætt við umboðsmenn kantmannsins Kerim Alajbegovic en þessi 18 ára strákur hefur vakið athygli með Bosníu og Hersegóvínu á HM.

- Þá mun félagið hafa áhuga á Christos Tzolis, gríksum kantmanni Club Brugge. Hann er 24 ára.
Kerim Alajbegovic.

Kerim Alajbegovic.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.