Lille 1 - 0 PSG
1-0 Xeka('45)
1-0 Xeka('45)
Það fór fram stórleikur í Frakklandi í kvöld er bikarmeistarar Paris Saint-Germain mættu deildarmeisturum Lille.
Leikið var í Ofurbikarnum í Frakklandi en um er að ræða tvö sterkustu lið landsins um þessar mundir.
PSG þurfti að sætta sig við tap í fyrsta keppnisleik tímabilsins en Lille hafði betur með einu marki gegn engu.
Xeka skoraði eina mark Lille í leiknum en það var af dýrari gerðinni og kom eftir undirbúning Burak Yilmaz.
Franska deildin fer að hefjast en hún fer af stað um næstu helgi
Athugasemdir