01.09.16 - 21:42
Gunnar Birgisson
Ási Arnars: Í 70 mínútur er ég virkilega ánægður með liðið
Auglýsing


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
<i>„Kærkominn sigur, góður sigur. Lengst af ánægður með liðið, sköpum okkur mikið af færum og skorum tvö góð mörk, myndi segja í svona 70 mínútur er ég virkilega ánægður með liðið,\"</i> sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fram eftir 2-1 sigur hans manna á HK í Inkasso deildinn í kvöld, leikið var á Laugardalsvelli.
„Eftir að möguleikar í efri hlutanum duttu út fyrir nokkrum umferðum síðan höfum við verið að fókusera bara á einn leik í einu og reyna að ná í eins mörg stig og við getum,\" sagði Ásmundur við Fótbolta.net.



