Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 22:03
Brynjar Ingi Erluson
Haaland braut puttann á Van Dijk: Ég veit ekki hvernig það gerðist
Erling Haaland og Virgil van Dijk í leiknum í kvöld
Erling Haaland og Virgil van Dijk í leiknum í kvöld
Mynd: EPA
Norski framherjinn Erling Braut Haaland segist hafa puttabrotið hollenska varnarmanninn Virgil van Dijk er Noregur og Hollands áttust við í undankeppni HM í kvöld.

Haaland skoraði eina mark Noregs í leiknum en Davy Klaassen gerði mark hollenska liðsins.

Norðmaðurinn barðist við einn besta varnarmann heims í leiknu, Virgil van Dijk, en hann sagði í viðtali við TV2 eftir leikinn að hann hafi puttabrotið þennan öfluga varnarmann Liverpool.

„Ég held að ég hafi puttabrotið Van Dijk. Hann kom upp að mér og sagði: „Andskotinn hafi það, ég held að ég held að þú hafir puttabrotið mig." Ég hef ekki hugmynd um hvernig það gerðist," sagði Haaland.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner