Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 13:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kári sá eini sem er tæpur fyrir morgundaginn
Icelandair
Kári Árnason
Kári Árnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Arnar Þór Viðarsson og Kári Árnason sátu fyrir svörum á fréttamannafundi í dag. Framundan er landsleikur gegn Rúmeníu á morgun. Í kjölfarið eru svo leikir gegn Norður-Makedóníu og Þýskalandi.

Það kom fram á fundinum að ólíklegt væri að sami leikmaðurinn yrði með fyrirliðabandið í öllum leikjunum.

Þeir Arnar og Kári voru spurðir hvort allir væru klárir fyrir leikinn á morgun.

Kári svaraði því að hann væri sá eini sem væri eitthvað tæpur fyrir leikinn.

Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:45 og fer fram á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner