Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 06:00
Victor Pálsson
Robin Olsen lánaður í Championship-deildina (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Markmaðurinn Robin Olsen er genginn í raðir Sheffield United í næst efstu deild Englands.

Olsen kemur á lánssamningi frá Roma á Ítalíu en hann lék með Everton í láni á síðustu leiktíð.

Um er að ræða landsliðsmann Svía sem mun leysa Aaron Ramsdale af hólmi í marki Sheffield.

Ramsdale var keyptur til Arsenal fyrr í sumarglugganum en Olsen kemur til Sheffield á láni.

Liðið getur svo keypt hann endanlega næsta sumar.

Athugasemdir
banner
banner
banner