Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. september 2021 08:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tólfan stendur með þolendum - Engir söngvar fram að 12. mínútu
Icelandair
Tólfan á síðasta leik við Rúmeníu, sem var í umspilinu fyrir EM.
Tólfan á síðasta leik við Rúmeníu, sem var í umspilinu fyrir EM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tólfumeðlimir á leið á völlinn.
Tólfumeðlimir á leið á völlinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir tíma Covid.
Fyrir tíma Covid.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Framundan eru þrír mikilvægir leikir hjá landsliðinu.
Framundan eru þrír mikilvægir leikir hjá landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tólfan, stuðningssveit íslensku landsliðanna í fótbolta, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á því sem hefur átt sér stað síðustu daga.

Það hefur skapast mikil umræða um kynferðisofbeldi af hálfu landsliðsmanna. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir steig fram í fréttatíma RÚV á föstudagskvöld og sagði þar frá ofbeldi og kynferðislegri áreitni af hálfu landsliðsmanns sem faðir hennar tilkynnti til KSÍ.

Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, sagði í viðtali við Kastljós á fimmtudag að engar tilkynningar eða ábendingar hefðu borist frá því hann tók við formennsku en greindi svo frá því í fréttatímanum á föstudag að hann hafi farið með rangt mál. Hann lét af störfum á sunnudag eftir mikil fundarhöld.

Stjórn KSÍ sagði af sér á mánudag en framkvæmdastjórinn, Klara Bjartmarz, situr áfram þrátt fyrir mikinn þrýsting um uppsögn.

Það er landsleikur á morgun þegar Ísland mætir Rúmeníu í mikilvægum leik í undankeppni HM. Tólfan mætir á leikinn en meðlimir hennar ætla að sitja í þögn fyrstu 12 mínútur leiksins. Stuðningssveitin stendur með þolendum.

Yfirlýsing Tólfunnar
Nýtt upphaf

Það hefur ekki farið framhjá neinum að mikil umræða hefur skapast í kringum karlalandsliðið í fótbolta.

Umræðan er hluti af stærra máli þar sem öflugt fólk - hetjur okkar tíma, þolendur ofbeldis - gerir þá einföldu og sanngjörnu kröfu að skapað verði samfélag án ofbeldis. Þöggun, meðvirkni og leyndarhyggja skulu þar með heyra sögunni til.

Í raun er einfaldlega krafist heilbrigðara og fallegra samfélags. Krafist er byltingar.

Knattspyrnuheimurinn hefur, vegna hegðunar leikmanna liðsins og óviðunandi viðbragða knattspyrnuyfirvalda, orðið miðpunktur þessarar byltingar. Eðlilega.

Stuðningsmannafélagið Tólfan vill koma því skýrt á framfæri að, lykilsetning félagsins hefur alltaf verið: 'Ekki vera fáviti'.
Ofbeldi er fávitaskapur - í öllum sínum myndum.

Tólfan fordæmir allt ofbeldi og vill á sama tíma koma á framfæri þakklæti til þeirra einstaklinga sem fram hafa komið og sýnt gríðarlegan kjark með því að segja sínar sögur.

Það eru þið, með ykkar vinnu sem skapið grunn að heilbrigðara og fallegra samfélagi.

Takk.

Við stöndum með þolendum.
---
Framundan eru þrír mikilvægir leikir hjá landsliðinu.

Stuðningsmannafélagið Tólfan hefur ávallt reynt að styðja íslensku landsliðin af öllu hjarta, með jákvæðum hætti, og hefur það vakið athygli utan landsteinanna.

Það verður að viðurkennast að erfitt hefur reynst að finna jákvæðnina í öldurótinu en hefur Tólfan ákveðið að:

Fram að 12. mínútu leiksins mun Tólfan sitja og engir söngvar koma frá stúkunni, þeir sem kjósa og eiga, bera bönd Bleika Fílsins og vera með Fokk ofbeldi húfur á komandi leikjum og hvetjum við þá sem eiga slíkt að koma með á leikinn. Einnig var ákveðið að skella í einn borða með stuðningsyfirlýsingu til þolenda. Einnig munum við taka samtalið við KSÍ og koma okkar skoðunum á framfæri við þau.

Vonar Tólfan að með þessu verði skapaður grunnur að nýju upphafi, nýju jákvæðara samfélagi.

Með því skorar Tólfan á þjóðina alla að mæta á völlinn og styðja við liðið.

Áfram Ísland!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner