Fotbolti.net
01.09.22 - 15:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Everton kaupir Gueye aftur frá PSG (Staðfest)

Everton kaupir Gueye aftur frá PSG (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur fengið Idrissa Gana Gueye aftur í sínar raðir. Félagið kaupir hann á átta milljónir punda frá PSG.

Gueye, sem er 32 ára, skrifar undir tveggja ára samning við félagið sem hann yfirgaf árið 2019.
Gueye er senegalskur miðjumaður sem kom fyrst til Everton árið 2016 frá Aston Villa og spilaði þá 108 leiki fyrir félagið. PSG keypti hann svo sumarið 2019 en nú er hann mættur aftur.

Gueye er sjöundi leikmaðurinn sem Everton fær í sumar. Áður höfðu varnarmennirnir James Tarkowski, Rúben Vinagre og Conor Coady samið við félagið, miðjumaðurinn Amadou Onana og sóknarmennirnir Dwight McNeil og Neal Maupay.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.