16.11.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Ísland að ganga frá Lúxemborg

Mikael Egill skoraði fjórða landsliðsmark sitt

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael Egill skoraði fjórða landsliðsmark sitt

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mikael Egill Ellertsson hefur bætt við þriðja marki Íslands gegn Lúxemborg og er staðan því orðin 3-0.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Lúxemborg
Íslenska liðið fór með þægilega 2-0 forystu inn í hálfleikinn og var ekki lengi að bæta við þriðja markinu eftir hlé.
Orri Steinn Óskarsson fékk boltann vinstra megin við vítateiginn, keyrði inn í teig og lagði boltann út á miðjan teig. Þar fór hann í gegnum nokkra leikmenn áður en hann barst til Mikaels sem skaut honum af öryggi í vinstra hornið.
Þetta var fjórða landsliðsmark Mikaels og annað mark hans í Þjóðadeildinni á þessu ári.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.